Jæja
Þá er komið að bloggi númer tvö inná þessari síðu…
Takk fyrir öll kommentin, nema það frá mömmu minni sem hljómaði svona
Heiðrún Hámundar sagði:
6. ágúst, 2008 kl. 9:18 fh.Til hamingju með nýju síðuna þína Snorri minn.
Miðað við fyrri störf, þá hef ég enga trú á því að þú bloggir eitthvað hérna.. en ég held þó í vonina;o)
Svo ef að maður kíkir nú inná síðuna hennar, sér maður blogg frá 27. júní, en það er meira en mánuður síðan að það var skrifað, hmmm..
Þannig að ég vona þá að hún móðir mín byrji nú að blogga eitthvað að viti til þess að fá smá samkeppni í þetta. Það þýðir ekkert að koma með svona yfirlýsingar og vera svo frekar löt við að blogga.
En nóg af því….
Það er búið að vera frekar leiðinlegt veður síðustu daga, rok, rigning og 15° hiti, nálægt Íslenska sumerveðrinu eins og ég man eftir því, en það er nú víst eitthvað að breytast ;-).
Skólinn byrjar á mánudaginn næsta og við mamma fórum niður í bæ að versla inn fyrir skólann í dag.
Annars er nú stærsta fréttin að við pabbi erum búnir að panta okkur mðia og hótel á Liverpool-United í ensku deildinni 13. sept. Það verður bara snilld að komast á Anfield, og hvað þá að komast á besta leikinn á tímabilinu.
Svona að lokum ætla ég að segja frá Flickr síðunni minni, en ég er nokkuð duglegur við að setja nýjar myndir þangað inná. Hérna er ein þeirra.

